VESO er þekkingarfyrirtæki um val og notkun efnavara og hreinsiefna. Starfsmenn VESO búa yfir sérfræðiþekkingu á öllu hreinlæti og sótthreinsunum fyrir menn og dýr auk þess að búa yfir mikilli reynslu við ráðgjöf og sölu á þessum vörum.
Almar er menntaður tæknifræðingur MPM og er með sterkan bakgrunn í ráðgjöf, framleiðslu og sölu í hreinsi- og sótthreinsun í landbúnaði, fiskeldi og matvælavinnslum almennt.
Hann hefur unnið í þessum geira síðan 1995 hjá nokkrum fyrirtækjum. Almar hefur brennandi áhuga á að skapa vettvang fyrir heilbrigðari dýr með hreinu og öruggu umhverfi.
Haukur hefur starfað við sölu og ráðgjöf í hreinsi- og sótthreinsiefnum frá árinu 2010 og þekkir þennan markað mjög vel.
Hann hefur reynslu af heimsóknum til viðskiptavina bæði í fiskeldi og öðrum landbúnaði. Haukur hefur ástríðu fyrir heilbrigðu smit litlu umhverfi fyrir dýr almennt.
Gísli hefur starfað að þessum málaflokki síðan 2013 og hefur sérhæft sig í uppsetningu skömmtunarbúnaðar fyrir þvottatæki.
Gísli getur forritað og skammtað rétt magn í þvottavélar hvaða nafni sem þær heita. Helstu iðnaðarþvottahús landsins geta treyst á að hann skammti rétt og þvotturinn verður hreinn á hagkvæmastan hátt.
Davíð hefur starfað við sölu og ráðgjöf til fyrirtækja í yfir 30 ár. Hann hefur starfað við ráðgjöf í hreinsi- og sótthreinsiefnum í frá árinu 2011 og þekkir vel til markaðarins.
Hann hefur reynslu af heimsóknum til viðskiptavina í fiskeldi, sjávarútvegi og öðrum matvælaiðnaði. Davíð hefur ástríðu fyrir að starfa með matvælafyrirtækjum í hreinlætismálum.