Bio Gel 25 kg Sterkur kvoðuhreinsir
Vörunúmer: 1020526
BIO Gel er sérstaklega hannað þar sem hreinsa þarf mikil óhreinindi sem hafa fest sig við yfirborðið. BIO Gel hreinsar vel fitu, reykleifar, dýraúrgang og fleira og hentar fyrir flestar tegundir kvoðutækja.
BIO Gel hefur „gel“ eiginleika þannig að það liggur lengi á fletinum. Efnið er sterkt alkalískt hreinsiefni, með mjög góða kvoðu eiginleika og vegna þess að það liggur lengur á nær það góðum hreinsieiginleikum.
Blöndunarhlutföll: 2-5%
Snerti tími: 10-60 mínutur
Skolið með volgu eða köldu vatni hvort sem er með lág- eða háþrýstingi.


